Bókið núna

Hefðbundin ferð í Raufarhólshelli

Í hefðbundinni ferð getur þú skoðað hellinn á auðveldan og ánægjulegan hátt. Hellisgangurinn er víða varðaður stórum steinum sem áður ollu því að hann var erfiður yfirferðar. Nú hefur göngubrú og nokkrir göngustígar verið lagðir yfir torfærustu hlutana og hellirinn er því flestum fær. Þessi hluti hellisins hefur verið lýstur upp með einstaklega áhrifamiklum hætti sem kallar fram litbrigði hraunsins og sýnir greinilega þá öflugu eldvirkni sem á sínum tíma mótaði hraunganginn.

1

klst.

7.400

isk

1/5

erfiðleiki

Boðið er upp á ferðir á klukkustundar fresti og hver ferð tekur um 55–60 mínútur. Við mælum með því að þú bókir ferðina fyrirfram til að tryggja þér pláss á þeim tíma dags sem þér hentar.

Hefðbundnar ferðir eru farnar á klukkustundar fresti og hver ferð tekur um 55–60 mínútur.

Við sköffum hjálma og höfuðljós. Mælt er með því að fólk klæðist hlýjum fötum og sé í góðum, þykkbotna skóm. Athugið að venjulega drýpur eitthvað vatn úr þaki hellisins og því mælum við með vatnsvörðum eða vatnsheldum jakka/fötum. Það skaðar heldur ekki að mæta með bros á vör …

Verð:
7.400 isk
Lágmarksaldur:
3 ár
Heildarlengd ferðar:
1 klst.
Erfiðleikastig:
1/5

Þessi ferð á að vera flestum fær en þó er ekki mælt með henni við fólk sem er með lélegt jafnvægisskyn eða á erfitt með að ganga á ójöfnu (svo sem í snjó eða á ójöfnum stígum) eða á í erfiðleikum með að ganga upp og niður bratta stiga.

Farartími:
Opið 09:00 – 17:00 alla daga
Innifalið:
Hellaferð undir leiðsögn (á ensku), höfuðljós og hjálmur
Ekki innifalið:
Akstur til og frá hellinum
Takið með ykkur:
Hlý föt og góða, þykkbotna skó!

Leiðin að Raufarhólshelli

Hellirinn er í tæplega hálftíma akstursfjarlægð (um 30 km) frá Reykjavík og vegurinn er fær öllum bílum. Ekið er um 18 km leið í austur frá Reykjavík eftir þjóðvegi 1. Þá er beygt til hægri yfir á þjóðveg 39 (Þorlákshöfn) og ekið áfram 12 km leið. Bílastæðið eru þar við veginn á vinstri hönd. Hellirinn er einnig merktur inni á Google Maps. GPS-hnitin eru: N.63° 56.407 / V.021° 23.742

Ferðin var einstaklega ánægjuleg. Leiðsögumaðurinn okkar var bæði fróður og fyndinn. Hellirinn er athyglisverður og hrífandi. Ég mundi mæla með honum við hvern sem er.

Bókið núna