Velkomin(n) í ókeypis hellaferð 11. maí

Við þökkum frábær viðbrögð gesta frá því Raufarhólshellir var opnaður eftir endurbætur sumarið 2017 en síðan þá hafa rétt tæplega 100 þúsund gestir heimsótt hellinn. Þrátt fyrir það hefur umgengni í og við hellinn aldrei verið betri og ástand hans í raun mun betri en áður var.

Við viljum bjóða  ykkur í fría hellaskoðun laugardaginn 11. maí. Með því gefst kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur að njóta þessa stórkostlega nátturufyrirbæris í öruggu umhverfi með leiðsögn. Hver ferð tekur u.þ.b. eina klukkustund og verða þær farnar á klukkutíma fresti frá kl. 11–17. Takmarkaður fjöldi er í hverja ferð og skráning því nauðsynleg. Við mælum með að þið klæðið ykkur vel og séuð í góðum skóm.

Athugið að leiðsögn fer að mestu fram á ensku. Vinsamlega mætið a.m.k. 10 mínútum fyrir áætlaða brottför, ellegar eigið þið á hættu að missa plássið ykkar.

Verkfræðistofan EFLA hannaði látlausa en fallega lýsingu sem bætir upplifun gesta í Raufarhólshelli og hefur verkfræðistofan og The Lava Tunnel hlotið margvísleg lýsingarverðlaun frá því að hellirinn var opnaður á ný. Má þar m.a. nefna verðlaun fyrir bestu útilýsingu Íslensku lýsingarverðlaunanna 2017 og stór alþjóðleg lýsingarverðlaun á árinu 2018 á borð við Darc Awards og LIT Design.

Við erum stolt af þeim árangri sem við höfum náð og teljum þau staðfesta gæði verkefnisins.

Kær kveðja,

Starfsfólk The Lava Tunnel/Raufarhólshellis.

Loading...